Tinnu kökur

Tinnu kökur From Iceland 🇮🇸 • live in Akureyri •
37 years old • married 💍 • three kids 👧👦👶

Elsku tengdamamma mín giftist ástinni sinni í dag og fékk ég þann heiður að gera brúðkaupsköku fyrir hjónakornin 🥰Ég fék...
20/06/2026

Elsku tengdamamma mín giftist ástinni sinni í dag og fékk ég þann heiður að gera brúðkaupsköku fyrir hjónakornin 🥰

Ég fékk alveg frjálsar hendur og ákvað því að gera eitthvað í þeirra anda (létt geggjuð). Þar sem þau eru mótorhjólatöffarar og á leiðinni í tjaldferðalag á hjólunum sínum ákvað ég að skreyta kökuna í því þema.

Vanillukaka með vanillusmjörkremi, skreytt með mótorhjólum og tjaldi úr sykurmassa 🏍⛺️

Við héldum upp á 3 ára afmæli sonar míns í gær og var hann harðákveðinn í að vilja Stitch afmælisköku svo ég skellti í e...
25/05/2026

Við héldum upp á 3 ára afmæli sonar míns í gær og var hann harðákveðinn í að vilja Stitch afmælisköku svo ég skellti í eina einfalda 🥰

Vanillubotnar með hindberjamús (prófaði nýja uppskrift) og ferskum hindberjum á milli og vanillusmjörkremi utanum 🤤
Skreytt með Stitch sem ég gerði úr sykurmassa og kökuskrauti 😍

Engar kökur í marga mánuði hjá mér og svo koma tvær á einni helgi 🙃Útlitið á kökum helgarinnar var mjög ólíkt en í dag h...
19/04/2026

Engar kökur í marga mánuði hjá mér og svo koma tvær á einni helgi 🙃

Útlitið á kökum helgarinnar var mjög ólíkt en í dag héldu dóttir mín og vinkona hennar upp á afmælin sín. Þær vildu hafa töluna 10 og að kakan væri í "teiknimyndastíl". Ég reyndi mitt besta til að verða við þeirri ósk og varð þetta útkoman 😊

Vanillukaka með vanillusmjörkremi, skreytt með sykurmassa 🎂🔟

Langt síðan ég hef póstað einhverju hér inn 🙈Ég fékk þann mikla heiður að fá að gera fermingarköku en þetta er í fyrsta ...
18/04/2026

Langt síðan ég hef póstað einhverju hér inn 🙈

Ég fékk þann mikla heiður að fá að gera fermingarköku en þetta er í fyrsta skiptið sem ég geri það 😊

Í þetta sinn gerði ég vanilluköku með jarðarberja mousse og ferskum jarðarberjum á milli botna og vanillusmjörkrem utanum.

Fyrir þessa köku fór ég á smá "námskeið" hjá pabba mínum í að búa til rósir úr sykurmassa og held ég að okkur hafi tekist nokkuð vel til miðað við fyrstu tilraun 😊



Address

Xx
Akureyri

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tinnu kökur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Tinnu kökur:

Share