27/06/2026
Í dag er stór dagur og Götuveislan á Flateyri í fullum gangi. Við erum með opið frá 11-18. Milli 11 og 13 tökum við þátt í Gullkistan Vestfirðir og bjóðum smakk af nýbökuðu brauði með túnsúrupestóinu okkar og rabbarbarasultu sem við búum einnig til á staðnum. Auðvitað fá gestir líka að smakka nýbakað rúgbrauð með reyktum rauðmaga úr firðinum 👌
Svo verðum við með smá útibú í sölutjaldinu milli 13 og 16, þið ættuð ekki að missa af okkur 🫶