22/08/2022
Hugleiðingar bakarans
Mikið er talað um innflutning á tilbúnum eða óbökuðum bökunarvörum sem fer sífellt vaxandi hér á landi, enda ódýrar og oft ágætis vörur. En gallinn er sá að fæstir vita hvert innihaldið í vörunni er. Stundum er einnig óskiljanlegt hvernig hægt er að halda vöru ferskri svona lengi, en það segir okkur kannski eitthvað hvert innihaldið í vörunni er.
Í þessu samhengi er oft talað um súr og súrdeig; er það betra? Hollara? Eða bara betra á bragðið? Og hvað er þá alvöru súrdeig? Því miður eru ekki til neinar almennar reglur um hvað alvöru súrdeig er og hvernig það á að vera. Margir vilja meina að súrdeig sé lifandi súr sem þarf að fæða næstum á hverjum degi og ekki er verra sé hann kominn vel til ára sinna. En það vill þannig til að flest allir nota smá ger til að búa til súr. Til að útskýra nánar, þá er búið til fordeig þar sem uppskrift er ca. 1 kg mjöl, 1 kg vatn og ca. 5-20 gr. af geri. Þetta er svo látið hefast i sólarhring. Þá er komið svokallað fordeig sem má alveg kalla fordeigs súr. Þetta er svo notað til þess að laga deigið sem er látið hefast aftur í ca. sólarhring. Ég tek það fram að þetta er mjög gott deig. Þetta er t.d. notað til að gera alvöru franskt baguette. En frakkarnir kalla þetta ekki súrdeigs brauð.
Margir selja svona brauð eða pizzur sem súrdeig. Það er ekkert sem bannar það og í raun ekkert sem segir að þetta sé ekki súrdeig, enda fær þetta að súrna í ca. tvo daga og áferðin ekkert ósvipuð. En í mínum huga og margra annarra er alvöru súrdeig búið til úr gömlum súr og ekkert ger notað í deigið. Eins og margir vita og sjá hjá mér á Instagram, nota ég eingöngu súr sem ég er búinn að halda lifandi í um 20 ár. Það er vissulega meiri vinna og þarf mikla þekkingu og reynslu til að búa til gerlaust deig svo það verði gott. Það er alltaf spennandi að sjá hver útkoman verður þar sem súrinn getur átt sína slæmu daga eins og ég.
Ég veit ekki um neinn annan pizzastað hér á landi sem notar svona lifandi súr eins og ég geri, tek það fram að ég veit ekki um neinn, en er ekki að staðhæfa það.
En ég vil taka það sérstaklega fram að svona deig eins og ég laga eru ekki endilega betri á bragðið, það er alltaf smekksatriði hvað hverjum finnst í þeim efnum.
Verum ekki súr bara glöð.