17/07/2026
Græn viðvörun! 🥦🥦🥦
Ný uppskera af íslensku spergilkáli er komin í verslanir.
Það jafnast ekkert á við ný skorið spergilkál beint af akrinum.
Spergilkálið er græni risinn í ofurfæðudeildinni enda algjört trefjatröll. Spergilkál er troðið af fjör- og steinefnum, ekki síst blöðin og stilkurinn sem verður lungamjúkur við eldun.
Spergilkál er ríkt af C vítamíni, Kalíum og vellauðugt af Fólínsýru sem er svo mikilvægt fyrir bumbubúann og mömmu hans. 🙂 👍