14/12/2019
Maggi meistari hefur matreitt sinn síðasta fisk
Þess vegna eru til sölu veitingastaðirnir Sjávarbarinn Grandagarði 9 og Matarbarinn Laugavegi 178. Til greina kemur að selja staðina saman eða sem sjálfstæðar einingar.
Sjávarbarinn sérhæfir sig í fersku sjávarfangi og er með langa rekstrarsögu. Staðurinn er þekkt vörumerki, hefur einkunnina 4,5 á TripAdvisor, með mörg mjög góð „review“ og með Certificate of Excellence 2017-2019. Matarbarinn sérhæfir sig í heimilismat en hefur verið stuttan tíma í rekstri. Staðurinn hefur einkunninna 5,0 á Tripadvisor. Báðir staðirnir eru mjög vel búnir tækjum, með tilbúnar vefsíður og góðan sýnileika á samfélagsmiðlum. Einnig er möguleiki að leigja staðina með forkaupsrétti.
Áhugasamir snúi sér til Jóns Egilssonar hjá JA lögmannsstofu. Hægt er að hafa samband við hann í með því að senda póst á netfangið [email protected] eða í síma 568-3737.