Matís

Matís Hjá Matís er unnið að fjölbreyttum verkefnum í matvælaiðnaði þar sem áhersla er lögð á nýsköpun og verðmætaaukningu.

Verkefnin eru unnin í samvinnu við matvælaframleiðendur, háskóla og öll þau sem með einhverjum hætti veita matvælaiðnaði þjónustu. Matís focuses on research and development in the food and biotechnology industries and supports companies from all over the globe.

📣Námskeið um eftirlit og forvarnir gegn Legionella bakteríuÁ dögunum hélt Hrólfur Sigurðsson, teymisstjóri hjá örverudei...
22/06/2026

📣Námskeið um eftirlit og forvarnir gegn Legionella bakteríu

Á dögunum hélt Hrólfur Sigurðsson, teymisstjóri hjá örverudeild Matís, námskeið um eftirlit og forvarnir gegn Legionella bakteríunni.

💡Námskeiðið fjallaði um helstu áhættuþætti sem tengjast bakteríunni, hvernig hún fjölgar sér í vatnskerfum og hvaða aðgerðir draga úr líkum á smiti.

Þátttakendur fengu fræðslu um mikilvægi réttra hitastillinga á heitu vatni, reglubundins viðhalds á sturtuhausum og krönum og hvernig forðast má dauða enda í lagnakerfum. Einnig var farið yfir viðbragðsáætlanir ef Legionella greinist.

🔗Nánari upplýsingar https://loom.ly/01x68YE

Á dögunum hélt Hrólfur Sigurðsson, teymisstjóri hjá örverudeild Matís, stutt og hnitmiðað námskeið um eftirlit og forvarnir gegn Legionella bakteríunni. Námskeiðið var […]

📰 Bændablaðið er hér með glæsilega umfjöllun um málþing Matís – Ávinningur Matvælarannsókna sem fram fór í Hörpu þann 2....
18/06/2026

📰 Bændablaðið er hér með glæsilega umfjöllun um málþing Matís – Ávinningur Matvælarannsókna sem fram fór í Hörpu þann 2. júní síðastliðinn.
Við mælum með að lesa, hér: 👇

Árlegt málþing Matís, með yfirskriftinni Ávinningur matvælarannsókna, fór fram í Norðurljósasal Hörpu þann 2. júní síðastliðinn. Fæðuöryggi, sjálfbær framleiðsla og nýsköpun í þörungarækt voru meðal umfjöllunarefna.

Hlekkur hér að neðan.

📣Aðalfundur Matís 2026 Aðalfundur Matís var haldinn í gær 15. júní. Á fundinum var farið yfir starfsemi og árangur liðin...
16/06/2026

📣Aðalfundur Matís 2026

Aðalfundur Matís var haldinn í gær 15. júní. Á fundinum var farið yfir starfsemi og árangur liðins árs ásamt því að horfa til komandi verkefna og tækifæra.

📸Á myndinni eru fulltrúar stjórnar Matís, Salvör Jónsdóttir stjórnarformaður, Hólmfríður Sveinsdóttir, Salome Hallfreðsdóttir, Sindri Sigurðsson og Sigmundur Einar Ófeigsson. Elísabet Anna Jónsdóttir og Rebekka Hilmarsdóttir frá Atvinnuvegaráðuneytinu. Oddur Már Gunnarsson forstjóri Matís, Anna Kristin Danielsdottir aðstoðarforstjóri Matís, Jónas R. Viðarsson, Marta Gall Jörgensen og Elín Helena Bjarnadóttir.

📣 Dagana 9. og 10. júní hélt verkefnið MICROBIOMES4SOY sinn árlegan verkefnafund í Matís. 💡 Í verkefninu eru stundaðar r...
15/06/2026

📣 Dagana 9. og 10. júní hélt verkefnið MICROBIOMES4SOY sinn árlegan verkefnafund í Matís.

💡 Í verkefninu eru stundaðar rannsóknir sem byggja á örverusamfélögum (microbiome), fyrir heilbrigðara fæðu- og fóðurkerfi með nýtingu soja. Meginhlutverk Matís í verkefninu er að þróa nýtt og heilbrigðara soja fiskafóður fyrir fiskeldi.🐟

🤝 30 þátttakendur, bæði vísindafólk og úr iðnaðinum, komu saman og ræddu framgang og niðurstöður í verkefninu. Einnig var farið að heimsækja fyrirtækið FirstWater í Þorlákshöfn þar sem kynnst var starfsemi fyrirtækisins og rædd voru tækifæri við að nota soja í fiskafóður.

🔗 Kynntu þér verkefnið nánar hér: https://matis.is/matis_projects/urbaetur-i-matvaela-og-fodurkerfum-sem-byggja-a-sojaproteinum/

📣Framkvæmdateymi Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) heimsótti Matís 3. Júni síðastliðinn.🤝Tilefnið var að kynnast bet...
12/06/2026

📣Framkvæmdateymi Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) heimsótti Matís 3. Júni síðastliðinn.🤝

Tilefnið var að kynnast betur starfsemi Matís og skoða frekara samstarf á milli Matís og RML. Matís tók yfir greiningu arfgerða sem stýra þoli gegn riðu í sauðfé fyrr á þessu ári af Íslenskri erfðagreiningu.🐑

👉Erfðahópur Matís hefur um árabil veitt RML fjölbreytta þjónustu sem snýr að arfgerðagreiningum sauðfjár og annars búfénaðar (hrossum og kúm). 🐎🐄

🔬Aðstaða til erfðagreininga, örveru- og efnamælinga var skoðuð og þau rannsóknaverkefni kynnt sem Matís hefur unnið á undanförnum árum og tengjast ýmsum sviðum landbúnaðar. Verkefnin tengjast fyrst og fremst gæðum afurða, matvælaöryggi, sjálfbærni, verðmætasköpun, nýtingu hliðarstrauma og fullnýtingu afurða.

Skítur skeður – Málstofa um fiskeldismykju og skyldar áskoranir🐟📣Matís stóð fyrir Málstofu 8. júní sl. um fiskeldismykju...
11/06/2026

Skítur skeður – Málstofa um fiskeldismykju og skyldar áskoranir🐟

📣Matís stóð fyrir Málstofu 8. júní sl. um fiskeldismykju og skyldar áskoranir, þar sem meðal annars voru kynntar niðurstöður í verkefninu þar sem búið er að framleiða fyrstu lífkolin úr fiskeldismykju frá landeldi.

🐟Með stórauknu landeldi mun safnast upp laxamykja, þ.e. laxaskítur og fóðurleyfar, sem þarf að finna farveg fyrir. 📈Ef áætlanir landeldisfyrirtækjanna ganga eftir, má búast við rúmlega 100,000 tonnum af afvatnaðri mykju, með ca. 25% þurrefnisinnihaldi, falli til á ári hverju.

👉Til að setja þetta í samhengi, þá eru þetta um 40 Laugardalslaugar (50m), fullar af seigfljótandi mykju. Framleiðsla lífkola gæti orðið hluti af lausn við að koma þessu hráefni í sjálbæra notkun.

📣Umhverfisráðstefna Austurlands „Horfum til sjávar“ fór fram í Egilsbúð í Neskaupstað þann 5.júní síðastliðinn. Katrín H...
09/06/2026

📣Umhverfisráðstefna Austurlands „Horfum til sjávar“ fór fram í Egilsbúð í Neskaupstað þann 5.júní síðastliðinn. Katrín Hulda Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís og Stefán Þór Eysteinsson, fagstjóri hjá Matís héldu þar erindi.

👉 Katrín Hulda Gunnarsdóttir hélt erindi um Evrópuverkefnið MeCCAM sem snýr að því að þróa aðlögunar- og mótvægisaðgerðir fyrir sjávarútveg í Evrópu. Einblínt var á þær lausnir sem er verið að þróa á íslenska rannsóknarsvæðinu í samstarfi við Brim hf., Stiku og Trackwell.🌊

👉 Stefán Þór Eysteinsson, fagstjóri lífmassa og mælingar hjá Matís, hélt erindi um sjálfbæra verðmætasköpun.

💡Umhverfisráðstefna Austurlands er samstarfsverkefni Austurbrúar og Eyglóar og er ætlað að skapa vettvang fyrir samtal um umhverfismál og sjálfbæra þróun á Austurlandi.

🔗Hægt er að lesa nánar um ráðstefnuna, hér: https://loom.ly/gTqILMw
📸Myndir: Esther Ösp Gunnarsdóttir
Austurbrú

BioProtect verkefnið, sem Matís vinnur að, hélt sinn annan árlega fund nú á dögunum í Azores. Sophie Jensen, verkefnastj...
08/06/2026

BioProtect verkefnið, sem Matís vinnur að, hélt sinn annan árlega fund nú á dögunum í Azores.
Sophie Jensen, verkefnastjóri hjá Matís, fer með verkefnastjórn BioProtect sem er EU Mission Ocean and Waters verkefni.

👥 Samstarfsaðilar verkefnisins komu saman víðs vegar að úr Evrópu til að ræða hvernig við getum betur verndað og endurheimt vistkerfi sjávar🌊

📺Verkefnið rataði meira að segja í fréttirnar í Azores, eins og sjá mér hér (2:37): https://loom.ly/ViNMtn0
🔗Lestu meira um fundinn hér: https://bioprotect-project.eu/bioprotect-2nd-general-assembly-in-the-azores-from-tools-to-impact/
📸Hér má sjá myndir frá fundinum:

05/06/2026

📣 Jónas R. Viðarsson, sviðsstjóri rannsókna og nýsköpunar hjá Matís, kynnti MarineGuardian verkefnið á European Maritime Day í lok maí.
💡MarineGuardian verkefnið er að þróa um 40 lausnir sem hafa það að markmiði að gera fiskveiðar sjálfbærari og umhverfisvænni.🐟🎣
🔗 Þú getur kynnt þér verkefnið nánar, hér: https://loom.ly/cmzaQuc
European Commission

Katrín Hulda Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís, er hér í viðtali við Austurbrú um erindið sitt á Umhverfisráðstefn...
04/06/2026

Katrín Hulda Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Matís, er hér í viðtali við Austurbrú um erindið sitt á Umhverfisráðstefnu Austurlands sem fer fram á morgun, þann 5. júní.

💡 Þar mun hún kynna verkefnið MeCCAM og hvernig sjávarútvegur getur brugðist við áhrifum loftslagsbreytinga með aukinni þekkingu, samstarfi og nýjum lausnum. 🌍🐟

📅 5. Júní kl. 11:30 - 15:30
📍 Egilsbúð, Neskaupstaður

🔗Lestu viðtalið í heild sinni, hér: https://loom.ly/486tCLk

Katrín Hulda Gunnarsdóttir hjá Matís fjallar um áhrif loftslagsbreytinga á sjávarútveg á Umhverfisráðstefnu Austurlands.

Address

Vínlandsleið 12
Reykjavík
113

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3544225000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Matís posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Matís:

Share