30/06/2026
HELGIHALD Í SKÁLHOLTSPRESTAKALLI Í JÚLÍ
5. JÚLÍ
Messa í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU kl 11 með þátttöku Sumartónleika í Skálholti. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari ásamt sr. Kristjáni Val Ingólfssyni fv. vígslubiskupi sem einnig prédikar. Benedikt Kristjánsson, stjórnandi Sumartónleikanna leikur undir almennan safnaðarsöng. Að auki verður boðið upp á tónverkið "An Evening Hymn" eftir Henry Purcell við texta William Fuller, í flutningi Benedikts Kristjánssonar tenórsöngvara og Sergio Coto, sem leikur á Teorbu. Hér er boðið til veislu og allir eru innilega velkomnir. Sjá alla viðburði Sumartónleikanna á sumartonleikar.is
Sumarmessa í BÚRFELLSKIRKJU kl 14. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar. Glúmur Gylfason leikur á orgel undir og leiðir safnaðarsöng. Safnaðarkaffi undir kirkjuvegg.
Sumarmessa í SÓLHEIMAKIRKJU á afmæli Sólheima kl 14. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir fv. vígslubiskup þjónar og tónar, Ester Ólafsdóttir er organisti og leiðir safnaðarsöng. Opið á Grænu könnunni fyrir hressingu.
12. JÚLÍ
Messa í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU kl 11. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar. Jón Bjarnason dómorganisti leikur á orgel og flygil og leiðir safnaðarsöng. Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Innilega velkomin.
Sumarmessa í ÚTHLÍÐARKIRJKU kl. 14. Úthlíðarkirkja er bændakirkja í Tungunum og á 20 ára vígsluafmæli í sumar. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir sóknarprestur leiðir og Jón Bjarnason leikur á orgel. Kirkjukaffi í Réttinni eftir athöfn
18. JÚLÍ (laugardagur)
Útimessa við ÞORLÁKSSÆTI og setning Skálholtshátíðar kl 11. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir fv. vígslubiskup þjónar og tónar, ásamt sr. Kristínu Þórunni Tómasdóttur sóknarpresti Skálholtsprestakalls. Safnast er saman við dyr Skálholtsdómkirkju og gengið til þjónustunnar þaðan.
Tíðagjörð Ísleifsreglunnar kl 18 í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU. Ísleifsreglan sem er félag áhugamanna um klassískan kirkjusöng, er kennd við Ísleif Gissurarson, fyrsta biskup Íslands sem vígðist til Skálholts árið 1056 og stofnaði m.a. skóla á staðnum.
19. JÚLÍ
Tíðagjörð Ísleifsreglunnar kl 9 í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU. Ísleifsreglan sem er félag áhugamanna um klassískan kirkjusöng, er kennd við Ísleif Gissurarson, fyrsta biskup Íslands sem vígðist til Skálholts árið 1056 og stofnaði m.a. skóla á staðnum.
Hátíðarmessa á SKÁLHOLTSHÁTÍÐ í dómkirkjunni kl 14. Biskup Íslands, sr. Guðrún Karls Helgudóttir prédikar. Prestar, djáknar, biskupar og leikmenn þjóna fyrir altari. Skálholtskórinn syngur undir stjórn Jóns Bjarnasonar dómorganista.
Tíðagjörð Ísleifsreglunnar kl 18 í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU. Ísleifsreglan sem er félag áhugamanna um klassískan kirkjusöng, er kennd við Ísleif Gissurarson, fyrsta biskup Íslands sem vígðist til Skálholts árið 1056 og stofnaði m.a. skóla á staðnum.
26. JÚLÍ
Helgistund í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU kl 11. Bergþóra Ragnarsdóttir djákni þjónar ásamt Jóni Bjarnasyni dómorganista sem leikur á hljóðfærin og leiðir safnaðarsöng. Barnaborðið er ávallt á sínum stað. Innilega velkomin.